26apríl

HJÁLP!!!

Myndarlegur einhleypur kvenkyns íbúðareigandi óskast sem fyrst

26. apríl 2007 klukkan 22:06
Sveinn Rafn
7 athugasemdir
30mars

i'm gone

Veðrið er frábært. Það er stillt..hljótt..ég háma í mig skyr í morgunmat og með því. Júlli félgai er að koma frá Noregi í dag og það verður gaman að sjá hann..32 ár síðan.

Jæjjah, ákvað að kasta einni færslu inn áður en ég fer suður, en ég fer á morgun með JóhönnuHlæjandi Þetta verður alveg snilldarferð, fyrir víst. Akkurat núna er kl 20 mín í 9 að morgni, var að koma úr spinning og er bara að bíða eftir pabba til að geta komist í vinnu, en við erum að fara flísaleggja og e-ð. Svo bara vinna líka hjá Gallup og svo ætlaði Jón Þór að kíkja og við ætluðum að skella okkur í bíó.

Stórleikur svo á morgun í enska - LFC - Arsenal, byrjar 11:45.

Veriði sæl og sjáumst eftir laaaangann tímaHissa
30. mars 2007 klukkan 08:28
Sveinn Rafn
5 athugasemdir
26mars

Rauður er minn uppáhalds..en þinn?

Þú gætir eytt peningunum þínum í dekurdag, verslunarferð eða í að borga kreditkortareikningana þína. Þér mun líða einsog auðmanni ef þú losar þig við skuldirnar.

Jæjja, tími á smá blogg hérna!
Ég er ekki frá því að sumarið sé að fara að detta inn. Það var sullandi sól úti í fyrradag og 8 stiga hiti en það kæmi mér reyndar ekki mikið á óvart þó að það myndi snjóa á morgun, skítuga helvítis land. En hvað er að frétta þessa dagana..

Helgin saug jónson, nema laugardagurinn, hann var Snilld:D Föstudagurinn var bara rólegur. Fór með ma að versla aðeins inn og svo ákváðum við að skella okkur á nýja NINGS staðinn og hann er alveg brilliant, mjög góður matur og ekkert smá mikið sem maður fékk. Eftir það fór ég að vinna til hálf níu um kvöldið, fór heim og slappaði af enda búinn að vera erfiður morgun..byrjaði með spinning tíma á Bjargi kl 6 um morguninn, alveg geggjaðir þessir tímar og maður svitnar eins og vændiskona:D

Á laugardaginn var bara sama og venjulega, vinna frá hálf 10 til hálf 3 og á þeim tíma var ég mikið að velta fyrir mér hvað ég ætti að gera eftir að Jóhanna sendi mér sms og sagði að Sjallinn væri málið um kvöldið..en ég var eillega búinn að ákveða að fara ekki um kvöldið. En svo eftir miklar vangavelltur ákváðum við að kíkja í Sjallann um kveldið.
Skruppum í ríkið rétt fyrir lokun, bara til að vera save og þar lenntum við í smá hremmingum (þori ekki að segja hvað það er, gæti verið skammaðurGráta) en það leystist allt. Um kveldið talaði ég við félaga minn frá Niguaragua(staf.) hef ekki heirt í honum lengi, algjör snillingur, partýljón af verstu gerð, vindla-reykjari og ekur um á geggjaðri Hondu þar í landi. Seinna um kvöldið kom Jóa og sótti mig og við fórum inn á  café amour og náðum okkur í miða fyrir Sjallann og tókum nokra rúnta. Vorum að fara heim og þá setur löggan ljósin og allt fyrir aftan okkur og við héldum að hún væri e-ð að fara stoppa okkur, en þá tekur hún framúr okkur á svona 70 km hraða og röshar í átt að bautanum þar sem einhver maður hefur sennilega fengið hjartaáfall, allavega var sjúkrabíll þarna fyrir utann. Fórum heim til Jóhönnu og byrjuðum að djúsa og flippa e-ð og svo héldum við á Sjallann og þar var nóg af skemmtilegu fólki og geggjað stuð. Ég veit ekki hversu mikið maður var að fylgjast með Sálinni sjálfri sem var að spila, maður var alltaf uppi á diskógólfinu að dansa eða alltaf að flakka út og suður, en þetta var brilliant kvöld.

Í gær var bara sofið út og tekinn smá fótbolti.
Veðrið í gær var ömurlegt, kalt blautt og það snjóaði í fjallið hérna fyrir utan gluggann minn, held að það heyti Akrafjall eða e-ð álíka;)
Kv. Sveinn Rafn Akureyrabúmaður

26. mars 2007 klukkan 12:37
Sveinn Rafn
3 athugasemdir
23mars

Uppskriftin að fullkomnum hamborgara


Það hafa margir velt þessu fyrir sér. Hvað er það sem gerir góðan hamborgara. Það er ekkert mál að búa til fullkominn borgara á Íslandi. Hérna er uppskriftin:

1 Hamborgarabrauð (þau íslensku eru flest vond, reyndu að finna óvont)
115 grömm af nautahakki, það má vera fita í því, ekkert helvítis horkjaftæði!
Ein sneið af feitum  gulum osti. Gotti eða eitthvað álíka er algjör snilld, enda framleidd ofan í börnin og spikfeitt og nammi namm.
Stórar súrar gúrkur, þessar þunnu dönsku eru ekki að gera gott mót
Svona kál sem vex í litlum pottum. Hafðu ekki áhyggjur, kál er bara skraut.
Salt
Pipar, grófmalaður, helst ekkert ofboðslega mikið af hvítum
Majónes
Dijon
Sætt franskt sinnep
Tómatssósa

Ókei, áttu allt þetta í ískápnum? Gott. Svona gerirðu:

Taktu helvítis kjötið og hnoðaðu það í borgara sem er ca 15% stærri en brauðið. Ekki krydda eða bæta neinu við. Kjöt er gott eins og það kemur… úr kúnni.

Taktu u.þ.b. þrjár matskeiðar af majónesi, eina teskeið af sætu sinnepi, eina teskeið af Dijon og eina teskeð af tómatsósu og hrærðu þetta saman. Ólystugt spasl? Taktu u.þ.b. þrjár matskeiðar af safanum af súru gúrkunum og hrærðu saman við. Volla! Þú ert kominn með eðal hambósósu.

Hitaðu pönnuna þína, eða grillið, í fokkíng botn. Leyfðu þessu að vera orðið sjóðandi djöfulli heitt. Taktu þá brauðið í sundur og settu það á pönnuna í ca 5 sekúndur á hverja hlið. Nóg til að það hitni og stökkni en það má ekki harðna og brenna.

Settu borgaradraslið á pönnuna. Nú kemur smekkur manna inn í þetta en passaðu að elda þetta ekki í klessu. Þegar þú snýrð borgaranum við skaltu krydda hressilega með pipar og smá salti. EKKI SETJA OSTINN Á STRAX. Þegar þér finnst hammarinn tilbúinn þá skaltu þrýsta ofan á hann með steikingaspaðanum og taka allt vatn úr helvítis hakkinu (já, þetta er bara helvítis vatn) því við viljum ekki blautt hamborgarabrauð!

Ok, taktu hambósósuna og löðraðu henni á kúfðu hliðina á brauðinu. Já, þú ætlar að ‘dressa’ öfugu meginn. Þarf ég að segja þér hversvegna? Brauðið er þykkara þarna meginn. Settu svo stóru rifluðu gúrkurnar á sósuna og kál ofan á gúrkurnar. Settu ostinn á hambóinn og svo hambóinn ofan á kálið. Osturinn ætti þá að liggja að neðri hlið brauðsins. Svo snýrðu einfaldlega borgaranum við eftir smá stund og volla. Hann rennur ekki í sundur, hann lekur ekki út um allt. Allt er fullkomið.

Éttu svo helvítið og drekktu bjór með og ekki hika að tala um kellingar!

Varúð: Gamalt hamborgarabrauð er alltaf vont. Jafnvel þó það sé hitað. Sama gildir um ofur-sætt hamborgarabrauð, það er ógeð. Best væri að fá þetta nýtt, þá þarf ekki einusinni að hita helvítis. En á minni lífsleið hef ég aldrei geta keypt eitthvað sem líkist nýju hamborgarabrauði úti í búð. Þó hef ég nálgast svoleiðis kvikindi á búllunum sjálfum.

“Ég borða ekki súrar gúrkur!!!” Þá áttu ekki skilið að éta helvítis hamborgara! Éttu bara eitthvað annað. Hamborgari án súrra gúrkna er eins og Vinstri Grænir án Steingríms J.; ógeð!

“Magur ostur er fínn” Magur ostur er fínn eins og það er fínt að deyja úr niðurgangi. Magur ostur, eða gúmmí eins og hann hefur verið kallaður fram að þessu, er viðbjóður og spáðu í það. Hvurn andskotan heldurðu að þú græðir á því að borða frekar 0,2g af fitu í ostsneiðinni þinni en 0,3g. Ekkert hálfvitinn þinn! Magur ostur er líka ógeðslega vondur.

“Keypt hamborgarasósa er miklu betri!” Mamma þín hefði átt að skilja þig eftir í ruslatunnunni.

“Má ég nota eitthvað annað kjöt en nautakjöt?” Já. Það máttu. Um að gera að prófa allan andskotann. Þetta er í rauninni það eina sem má hreyfa við. Hrefnukjöt er t.d. tær snilld í svona. Mjög íslenskt er að hafa lambakjöt en þá myndi ég hugsanlega bæta rauðkáli og steiktum lauk við uppskriftina. En athugaðu að ef þú skiptir einhverju út fyrir eitthvað annað, þá gerirðu það á eigin ábyrgð!

“Ég er grænmetisæta, má ég nota bauna/soja/drullutussubuff?” Ég veit það ekki. Ég hef aldrei smakkað svoleiðis djöfulsins ógeð sem hamborgara. Notaðu bara ekki helvítis ógeðið sem Svíar kalla hamborgarakjöt. Það er ógeðslegt!

23. mars 2007 klukkan 21:39
Sveinn Rafn
2 athugasemdir
22mars

Suðurferð

Tjekklisti fyrir suðurferðina og það sem gera skal

  • Láta eins og asni á leiðinni
  • Stoppa til að taka armbeygjur
  • Tæma Intersport
  • Kaupa Intersport
  • Kitta Konna
  • Hitta Gummana tvo
  • Hitta allt hitt fólkið
  • Fara á búðarflipp
  • Fara í búðarflipp
  • Kíkja í Kef
  • Fara á sallatbarinn
  • Versla
  • Hafa gaman
  • Fara í bíó
  • Fara e-ð annað
  • Kúra hjá BergiHlæjandi
  • Borða mat
  • ....
Þetta verður algjör snilld!!!
22. mars 2007 klukkan 19:51
Sveinn Rafn
2 athugasemdir
19mars

Jæjjah, mættur með nýja færslu. Var farinn að hlakka mikið til að fara suður 2. Apríl..en núna er ég bara ekki viss=/ Málið er að það er ekki víst að ég geti sko reddað gistingu og svo er svo mikið vesen að vera ekki á bíl..en ég sé til, langar suður og ÞARF suður.
Seinasta fimmtudag fór ég í svokallaðann spinning tíma kl 6 um morguninn á Bjargi og það tók ekkert smá vel á og maður svitnar ekkert smá mikið og þetta var alveg frábærtHlæjandi
Ákvað að endurtaka leikinn aftur á sunnudaginn þannig ég fór með Jóhönnu kl 11 um morguninn í súperspinning sem var í 1 og 1/2 tíma og það tók líka verulega vel á. Snilldar strákur sem er með þessa tíma, öskrar mann alveg áfram. Hver veit nema maður fari að fara mæta oftar í þessa tíma, alveg frábærir.

Helgin á enda runnin og ný frábær vika í vændum, full af orku skemmtun og gleði. Helgin var bara róleg hjá mér, vinna og bara hafa það gott heima, ætlaði í bíó en það klikkaði..afturFýldur.

Annars er ekkert mikið að frétta, bar það sama gamla sama sagan. Hlakka mikið til sumarsins..vinna, djamma, verður gott veður, lyfta, sólbað, heitirpottar...fótbolti og slaka á í kvöldsólinni. Samt er ég enþá að ákveða næsta haust..en vonandi fer ég að fara finna það rétta..

Jæjjah, segi þetta gott, þarf að þjóta í atvinnuviðtal og fl.
Adios
19. mars 2007 klukkan 13:33
Sveinn Rafn
2 athugasemdir
14mars

Þegar slokknar í deginum yfirþyrmandi nótt..stormar fyrir stjarnanna her.



Í einu Rolling Stones lagi syngur Mick Jagger að hann sé ekki að bíða eftir konu heldur vini. Að eltast við hjörtu og pils getur jafnvel þreytt hörðustu rokkstjörnur. En það er samt þess virði þegar þú finnur einhvern til að faðma.



Jæjjah, ætlaði að blogga í gærkveldi, en þar sem pabbi fór með mig á ótroðnar slóðir þá var það bara ekki hægt. Annars er ekkert mikið að frétta. Helgin var bara róleg, vinna alla dagana og æfa samhliða því. Kíkti á Magnús á laugardaginn og prufaði þar einstaklega skemmtilega tölvu sem ber nafnið Nintendo ví, en í henni felgst að gera allar hreyfingar sjálfar sem koma síðan út í formi gerandans í leiknum sjálfum. T.d. fór ég í boxleik þar sem maður þurfti að berja frá sér eins og óður hundur. Maður heldur bara á 2 fjarstýringum og gerir svo boxhreyfingar líkt og í alvöru boxi og svo koma hreyfingarnar á skjáinn. Þetta er algjör snilld og góð hreyfing, annars var maður orðinn sveittur eftir þessar 3 lotur sem í boði voru. Eini gallinn er sá að maður "meiðir" sig ekki þegar andstæðingurinn hittir ekki..eða er það galli? veit ekki. Aðrir leikir voru hafnarbolti, golf og keila svo e-ð sé nefnt, og líkt og í boxinu þarf að gera allar hreyfingar sjálfur. En mæli með þessari tölvu, hægt að fara á netið og allt í henni. Hún kostar e-ð um 30 þúsund krónur held ég.

Annars er planið að skreppa suður fyrstu helgina í apríl sem er e-ð um 6. Það verður vonandi skemmtileg ferð og ég ætla kaupa helling af fötum og kíkja á búðarráp, það er bara geggjað gaman, hlakka tilHlæjandi
Ætlaði að fara á fótboltaæfingu í íþróttahöllinni í kvöld en er því miður að vinna frá 18-22 þannig ég verð að sleppa henni í þetta skiptið. Siggi félagi var að koma af sjónnum eftir 5 vikna túr og ég heyrði aðeins í honum í gær, hann ætlaði að gera sér ferð í bæinn í dag og hann ætlaði að kíkja í heimsókn.

Annars er ég enn óviss sambandi næsta haust. Langar rosalega í íþróttanám, íþróta-akademíuna eða jafnvel e-ð út, bara e-ð nýtt, held ég passi betur inní það sem ég geri dags daglega og hef brennandi áhuga á.

Komst að einu í gærkveldi þegar ég fór með pabba í vinnubúðirnar hans. Pabbi er skrítinn. Bíllinn hans pabba er skrítinn. Aðstaðan sem pabbi er með er skrítin. Kallarnir sem hann vinnur með eru skrítnir..en þetta var snilldar heimsókn og gaman að fylgjast með vinnunni hans.

Er málið að gera e-ð næstu helgi? ...

Nenni ekki að hafa þetta lengra, Adios!
14. mars 2007 klukkan 13:09
Sveinn Rafn
1 athugasemd
13mars

Blogg

Hendi inn bloggi í kvöld..
13. mars 2007 klukkan 17:19
Sveinn Rafn
5 athugasemdir
08mars

Ég geri hvað sem ég vil...ég geri fokking hvað sem ég vil



Þetta er Gunnar mörgæs. Gunnar er feitur, eins og sést að ofan. Gunnar er Ameríkani og stuðlar að uppbyggingu í Írak, en Ameríkanar hafa markvist unnið að uppbyggingu í Írak. Til að mynda væri hægt að klæða íbúa landsins upp í samkvæmisföt. Einnig má kenna fólki þar að borða hamborgara sem er kjarngóð fæða og holl. Ameríkumenn eru tilbúnir til þess að kenna fólkinu holla og góða siði, svokallaða Ameríkusiði.Hlæjandi

En hvað er annars að frétta. Langt síðann seinast..Ekkert mikið búið að ske..nema bara vinna öll kvöld og vera í ræktinni sem er frábært. Helgin byrjaði illa, tap fyrir ManU en svona er fótboltinn. Eftir það, eða reyndar í miðjum leik fór ég aðeins í bæinn að vesenæst, fór í ríkið og fór að taka mig til fyrir kvöldið, en stefnan var tekinn á Palla í Sjallanum. Jóhanna kom og sótti mig e-ð um 8 og þar fórum við á Greifann og sóttum pizzu og brunuðum heim til hennar...bjór og pizza..mikið af bjór..enda var mikið keypt. Svo sjallinn um kvöldið og það var ágætt..svo fór ég heim þar sem bróðir minn var enþá vakandi og við fórum bara og fengum okkur að borða og horfðum á DVD og það var bara fínnt. Sunnudagurinn var ágætur, fór í bolta og var bara heima í rólegheitunum.

Annars hefur ekki mikið gerst. Var að koma áðann úr fótbolta maraþoni, fór kl 4 í giljaskóla í bolta, kominn heim kl 19:45 og þá hringdi síminn og Dolli vildi ndilega fá mig með í bolta kl 9 í íþróttahöllinni og þar varð ágætis æfing til kl 22:00..alveg búinn á því..en svoooo gott!

Læt fylgja með texta sem félagi minn gerði, bara nokkuð gott

U want my life
before i forget
i am something u arn't
all that i wanted
and my questions
lead back to my love

En helgin? er e-ð að gerast???? Á e-ð að gera???? ég veit ekki..mikil pressa á manni núna

En þangað til næst..Adios..farið vel með ykkur
08. mars 2007 klukkan 00:39
Sveinn Rafn
8 athugasemdir
05mars

"Orgyur"

Orgyur..Orgyur hafa yfirleitt alltaf verið haldnar en núna ganga þær undir nafninu "hópsex". Gjarnan kemur mikil áfengis- og vímuefnaneysla við sögu. Orgyur geta verið homma eða lesbíu hópsex, algjörlega gagnkynhneigðar eða með fólki sem hefur mismunandi kynhneigð. Orgyur verða yfirleitt mjög virkar og ekki háðar reglum eins og makaskipta-partý. Ef þú ert heppinn getur venjulegt partý farið úr böndunum og endað í hópreið, en oftast eru svona viðburðir skipulagðir fyrirfram. Þeir sem skipuleggja hópsex fyrir gagnkynhneigða krefjast þess yfirlega að hver karl komi með eina konu eða öfugt til að tryggja að nóg sé af báðum kynjum. Í hópsex partýum getur kynferðislegt samband verið á milli tveggja aðila með alla hina ríðandi í kring, en stundum snertast margir í einu. Eina regglan er yfirleitt sú að spurt er um leifi áður en maður tekur þátt. Partý af þessu tagi eru mjög að smekk þeirra sem njóta þess að horfa á kynmök en líka fyrir þá sem njóta þess að láta horfa á sig í samförum.

05. mars 2007 klukkan 23:48
Sveinn Rafn
6 athugasemdir

Um mig

nafn: Sveinn Rafn
Aldur:20 ár
Staður:Akureyri
Email:sveninio@gmail.com
Msn:sveninio@hotmail.com
Áhugamál:Fótbolti, líkamsrækt
tónlist,íþróttir,vinir o.fl..
Vinna:ISS&Capacent Gallup
Ma&Pa:Já


Auglýsing

Könnun

Hvað á ég að gera í haust?????

R.I.P Cliff Burton

One fateful night ago 13 years,
I remember sitting and crying so many tears,
Sadly missed by fans, family and friends,
I wander the streets finding only dead ends,
A bus claimed your life at 24 years young,
Now the torch is passed to Metallicas new blood,
No one could match the way you played your bass,
No one could forget the little smile on your face,
For you, Cliff, is why I write this poem,
And good luck to you, Wherever You May Roam

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburðarteljari

Leit

Leikur dagsins